Söngkonan Jennifer Lopez hefur í nægu að snúast um þessar mundir, hún er á tónleikaferðalagi ásamt því að vera tvíburamamma og á kornungan kærasta.
Lopez er í viðtali hjá tímaritinu Harper’s Bazaar í febrúarmánuði ásamt því að vera forsíðustúlka blaðsins. Jennifer talaði um framann, börnin og margt fleira í tímaritinu.
Jennifer ferðast mikið vegna vinnu sinnar og hún segir að sér finnist mjög skemmtilegt að ferðast.
Hún passar sig alltaf á að líta vel út þegar hún er á ferðalögum (enda papparassar á hverju horni) og hún segir að hún sé orðin nokkuð sjóuð í því að ferðast (skiljanlega). Lífið sem hún lifir er svolítið flókið og stórt batterí í kringum hana þannig að hún reynir að gera ferðalögin eins einföld og mögulega hægt er.
Hún finnur til sín eigin föt, pakkar sjálf niður í tösku og setur fléttur í litlu dömuna sína, sækir föt barnanna og fleira af hversdagslegum hlutum. Hún gæti auðveldlega beðið aðstoðarfólk sitt um að sinna þessum hlutum fyrir sig en henni finnst eitthvað fallegt við það að gera þetta sjálf, það geri líf þeirra betra.
Jennifer er afar hæfileikarík manneskja, hún er dansari, söngkona, leikkona, þetta er eitthvað sem hún segir að hún eigi að gera. Þetta séu hlutir sem geri hana að betri mömmu og betri persónu. Hún er að gera það sem henni finnst gaman og líður þar af leiðandi betur með sjálfa sig.
Jennifer vakti mikla athygli þegar hún mætti í afar flegnum kjól frá Versage á Grammy verðlaunaafhendinguna árið 2000 og hún á kjólinn ennþá upp í skáp hjá sér.
Kona sem vinnur hjá henni setti kjólinn á gínu um daginn og sendi henni síðan mynd af kjólnum, Jennifer þykir mjög vænt um þennan kjól en vill samt helst hafa hann inn í skáp – en ekki til sýnis!
Við höfum líklegast allar gert eitthvað í þessum dúr á ævinni 🙂
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig