Jennifer Aniston er yfir sig hamingjusöm þessa dagana enda Justin er nýbúinn að fara á skeljarnar og Jennifer sagði já!
Justin átti afmæli á föstudaginn, skemmti sér konunglega og átti frábæran dag.
Hann fékk fullt af fallegum gjöfum en besta gjöfin var þegar Jennifer játaðist honum. Þetta kemur frá vini Justin sem staðfest hefur trúlofunina.
Jennifer og Justin byrjuðu að deita þegar þau léku saman í myndinni “Wanderlust” í maí í fyrra.
Miklar vangaveltur hafa verið uppi um hvort að þau séu hætt saman en hamingjan virðist blómstra hjá þeim og þau eru afar hamingjusöm saman.
Til hamingju!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig