Þú veist hvernig vinkonur klæða sig stundum óþægilega líkt? Þetta gerist líka fyrir pör…
Stundum þarf ekki einu sinni að líða langur tími frá því parið byrjar saman og þar til það er komið í furðulega svipaðan fatnað. Hver kannast ekki við að sjá gamla og gömlu í eins jogging-göllum… eða úlpum?
Jennifer Aniston og nýji kærastinn hennar Justin Theroux eru dottin í þennan gír, að vera alltaf í stíl. Reyndar eru þau skynsöm og sleppa því að vera í ALVEG EINS fötum en það er alltaf eitthvað sem jafnar lúkkið út hjá þeim báðum og ‘sínkar’ þau saman. Til dæmis eru þau með eins sólgleraugu, bæði í svörtu, í svipuðum skóm og svo framvegis.
Og sem betur fer eru þau bæði ferlega töff.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.