Leikkonan Jennifer Aniston heldur sér álltaf í hörkuformi en hún er nýtrúlofuð og alsæl með lífið í dag.
Jennifer mætti ásamt Justin unnusta sínum á gala kvöld LACMA en þar mættu fleiri stórstjörnur svo sem hin nýbakaða móðir Drew Barrymore, Cameron Diaz og Robert Pattinson.
Það sem vakti athygli var hversu fleginn kjóll Jennifer var en hún mætti í svörtum kjól eins og oft áður. Þessi var afar fleginn eða nánast niður á nafla. Jennifer er klárlega með kroppinn í þetta útlit og geislaði af gleði allt kvöldið en það var Tom Ford sem hannaði kjólinn.
Á hátíðinni voru Stanley Kubrick og Ed Ruscha heiðraðir en leikararnir virtust hafa skemmt sér konunglega á þessari gala samkomu.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af fræga fólkinu þegar það mætti á svæðið í sínu fínasta pússi.
_____________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig