Jennifer Aniston og Jusin Theroux eru nýlega trúlofuð eins og lesa má hér en Jennifer hefur brennt sig á ástinni áður og vill því hafa allt á hreinu. Nú undirbýr hún því kaupmála ásamt lögfræðingum sínum.
Það er alveg augljóst að Jennifer er með mun hærri tekjur en Justin og vill gera kaupmála til þess að varðveita fé sitt og eignir ef allt fer til fjandans en Jennifer er ansi launahá meðan Justin fær bara nokkra þúsundkalla fyrir leik sinn (kannski hækkar hann í launum á því að verða herra Aniston)??
Þau stefna á brúðkaup í lok árs og ætla síðan að hefja ættleiðingarferli. Jennifer er hamingjusamari en nokkru sinni fyrr og finnst hún loksins hafa fundið hina einu sönnu ást en svona til vonar og vara vill hún gera kaupmála svo að hún endi ekki staurblönk ef þau skilja.
Betra að hafa þessa hluti á hreinu þegar þú ert hálaunuð Hollywoodstjarna! Og kannski bara líka ef þú ert það ekki?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig