Jennifer Aniston er hamingjusamari en nokkru sinni fyrr og ræðir trúlofunina og hringinn sinn í nýjasta tímariti People.
Jennifer segir að hún hafi ekki haft grænan grun að unnustinn Justin hafi verið á leiðinni að biðja hennar. Hann fór afar leynt með allt fárið í kringum hringinn og talaði við nánasta samstarfsfólk Jennifer sem hefur unnið með henni í fjöldamörg ár til fá að vita hvernig smekk Jennifer hefur fyrir skartgripum.
Jennifer, sem var furðu lostin yfir bónorðinu, segir að sig hafi ekki grunað neitt – sem var mjög gaman því yfirleitt gruni hana þegar einhver er að bralla eitthvað sem hún á ekki að vita um.
Jennifer er afar ánægð með ráðahaginn og táraðist meira að segja með sínar stífu “nibbur” hjá vinkonu sinni Chelsea eins og lesa má um hér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig