Fyrrverandi Beverly Hills 90210 leikkonan Jennie Garth er nýlega skilin við eiginmann sinn til tíu ára og nú segist hún vera hrifin af “vondum strákum“.
Jennie segir þó að hún sé alls ekki hrifin af mönnum sem eru vondir -heldur sem líta út fyrir að vera “bad boys” en komi samt vel fram við hana.
Jennie sem hefur grennst óvenju mikið eftir skilnaðinn (eins og gengur og gerist þegar slíkt gerist) segist þó alls ekki vera tilbúin að fara út á stefnumót næstum því strax en hún sagði í viðtali í spjallþætti á dögunum:
“Ég myndi frekar sleikja skósólann minn heldur en að fara á stefnumót núna”.
Hún hefur þó verið orðuð við nokkra menn eftir skilnaðinn en hún segist alltaf vera að tala við sjálfa sig og segja…
“Nei, þú kannt ekkert að fara á stefnumót! Ég er einfaldlega of hrædd til þess að fara út með einhverjum manni”.
Samkvæmt henni er hún ekki að deita neinn þessa dagana og allt tal um sambönd er á gráu svæði hjá henni.
Þegar þáttarstjórnandinn Jeff Probst (stjórnandi Survivor þáttanna) minntist á netstefnumót þá sagðist leikkonan vera of hrædd til þess að reyna við þann hluta stefnumóta – það væri einfaldlega of hrikalegt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig