Smith fjölskyldan skellti sér í þakkargjörðarfrí til Hawaii yfir helgina og spókuðu sig á ströndinni þar sem Jada sýndi kroppinn!
Það er óhætt að segja að leikkonan er í svakalegu formi. Hún er með magavöðva á við tvítugar dömur í módelfitness!
Jada sýndi stæltan kroppinn í regnbogabikiní og lét ekki papparassana trufla sig heldur skemmti sér konunglega með fjölskyldunni. Will Smith er einnig þekktur fyrir að vera með svakalega magavöðva en ákvað þó að hylja þá með rúllukragabol í þetta skiptið meðan börn hjónanna Jaden og Willow skelltu sér á brimbretti og sýndu þar snilldartakta.
Það er óhætt að segja að Jada lætur mann vilja fara að hamast í ræktinni á stundinni enda er hún í svaka góðu formi miðað við aldur. Þetta er greinilega hægt.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig