Þá er það komið á hreint að Steven Tyler og Jennifer Lopez munu ekki vera með í næstu þáttaröð af American Idol.
Steven tilkynnti þetta á dögunum og sagði að núna væri kominn tími til þess að sinna fyrstu ástinni sinni aðeins betur en þá meinti hann Aerosmith sem lítið hefur heyrst frá eftir að hann settist í dómarasætið í Idolinu.
Jennifer staðfesti fregnirnar einnig í viðtali í útvarpsþætti Ryan Seacrest og sagði að það væri kominn tími á að hugsa um fjölskylduna og tónlistarferilinn.
Þá er bara að bíða og sjá hvaða stórstjörnur taka við þessum eðaldómurum í næstu þáttaröð en Mariah Carey hefur þegar verið nefnd til sögunnar sem staðgengill Jennifer.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig