Ireland Baldwin, dóttir leikaranna Alec Baldwin og Kim Basinger, er farinn í meðferð ef marka má Twitter síðuna hennar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ungmennið fer í meðferð, hún hefur áður verið send í afvötnun þar sem foreldrar hennar hafa víst haft áhyggjur af líferni dótturinnar.
Ireland finnst mjög gaman að djamma, dópa og djúsa en hún vill samt alls ekki meina að það hafi haft áhrif á það að hún sé komin í meðferð. Þvert á móti segist stelpan hafa orðið fyrir áfalli og því hafi hún ákveðið að skreppa í meðferð, fá sér frosna jógúrt og jafna sig í tvær vikur.
Skvísan þarf ekki að sætta sig við bara “einhverja” meðferð. Neil, það dugar ekkert minna en Malibú meðferð fyrir selebbabarnið sem er jafn íðilfögur og mamman. Hún er semsagt komin á SOBA meðferðarstöðina þar sem hún sætir sérstakri meðferð við tilfinningalegu álagi.
Ireland, eða Írland eins og hún myndi heita á íslensku (engin mannanafnanefnd í Hollywood) tístir hér og þú átt eflaust eftir að geta fylgst með því hvernig málin þróast þar sem hún heldur ekki mikið aftur af sér.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.