Það kannast eflaust nokkrir við söngkonuna Kellie Pickler en hún kom fram í American Idol árið 2005.
Kellie hefur gert það gott í kántrímúsík síðan hún tók þátt í American Idol og er orðin nokkuð fræg í Bandaríkjunum.
Æskuvinkona Kellie, Summer, greindist með brjóstakrabbamein í júní síðastliðnum og hefur þurft að fara í geisla og lyfjameðferð. Í kjölfar þessara veikinda missti Summer hárið og Kellie ákvað að sýna henni stuðning með því að raka einnig allt sitt hár en hún skartar vanalega síðum ljósum lokkum.
Kellie sagði að krabbamein mismunaði engum, það velur ekki eftir kynþætti, kyni eða neinu öðru. Summer sagði í kjölfarið að ef að Kellie hafi vakið athygli með þessu að þá vonist hún til að konur bíði ekki eftir því að þær verði fertugar að fara í sína fyrstu brjóstaskoðun. Miller þurfti að láta fjarlægja bæði brjóst sín og fer í lyfjameðferð nú í vikunni.
Kellie er svo sannarlega góð vinkona með hjartað á réttum stað og elskurnar, munið að skoða brjóstin reglulega-það getur bjargað lífi okkar!
_____________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig