Það er hugsanlegt að þessar dömur úr Hollywood hér í myndasafninu fyrir neðan séu búnar að finna leiðina að því að eldast ekki en þær virðast yngjast með aldrinum!
Hvernig sem þær fara að því þá líta margar af þeim betur út í dag heldur en þær gerðu þegar þær voru tvítugar, hvort það er frábærum förðunarvörum, hreyfingu, góðum stílistum, nokkrum bótox sprautum, hollu mataræði eða töfralausnum að þakka þá meiga þær eiga það að þær halda sér vel við!
Margar af þessum dömum eru mömmur og virðast blómstra eftir barnsburð, – kannski að þær verði meðvitaðri um hollt líferni eftir barnsburð og vilji sýna börnunum sínum gott fordæmi eða hafa heilsu í það að hlaupa á eftir þeim alla daga, hver veit?
Kíktu a þessar klassadömur hér fyrir neðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig