Fyrir MTV kynslóðina var Heidi Montag tíður gestur í raunveruleikaþáttunum “The Hills” hér á árum áður.
Heidi átti þá í stormasömu sambandi við eiginmann sinn Spencer og þau voru alltaf sundur og saman. Eftir að þáttunum lauk ákvað Heidi að skella sér í “nokkrar” lýtaaðgerðir í einu eða breyta líkamanum sínum algjörlega, hún fór í andlitslyftingu, brjóstaaðgerð, heil líkamsstrekkingu og fitusog svo að eitthvað sé nefnt allt á einu bretti. Alls tíu aðgerðir í einu!
Heidi var afar falleg stúlka áður en hún lét breyta sér og skera og klippa en hún mætti á dögunum á strippklúbb í Las Vegas þar sem hún var gestgjafi á afmæli klúbbsins.
Sjáðu myndirnar hér að neðan af Heidi… sitt sýnist hverjum um fegurðina.
______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig