Fyrrum unnusta Hugh Hefner og playboy kanínan Holly Madison á von á stelpu en það var kæró sem kjaftaði frá öllu saman á Twitter –úps!
Kærasti Holly, Pasquale Rotella, lét þau orð falla á Twitter þegar hann var á ferðalagi frá henni um daginn að hann væri þegar farinn að sakna stelpnanna sinna. Svo birti hann mynd af Holly og sónarmynd af dömunni sinni.
Hann hefur greinilega ekki áttað sig á ummælum sínum þegar hann sendi þau en þakkaði síðar fyrir sig þegar hamingju óskunum ringdi yfir hann á Twitter og sagði “já við erum afar spennt”.
Þær sem fylgdust með þáttunum um playboy kanínurnar vita það eflaust að Holly ELSKAR bleikt þannig að hún verður örugglega ekki í vandræðum með að finna bleik og krúttleg dress á verðandi erfingjann sinn.
Gaman að’essu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig