Það er umtalað í öllum helstu slúðurpressunum í dag að Kim Kardashian sé að skilja eftir einungis 72 daga hjónaband.
Flestir eru ekki hissa. Hjónabönd í Hollywood virðast sjaldan ganga upp en sum eru þó styttri en önnur. Ég ákvað að taka saman nokkur mjög stuttlíf hjónabönd svona “í tilefni” dagsins:
Britney giftist Jason Alexander – æskuvini sínum í Vegas árið 2004. Hjónabandið entist í heila 55 klukkutíma. Ég er nokkuð viss um að það sé sjaldan góð hugmynd að gifta sig í Vegas!
Lisa Marie Presley og Nicolas Cage. Þeim tókst að halda hjónabandinu gangandi í heila 3 mánuði.
Já Lisa Marie Presley hefur verið dugleg í hjónaböndunum í Hollywood og kemst því AFTUR á lista. Eitt furðulegasta par sem ég veit um. Michael Jackson og Lisa voru gift í 9 mánuði.
Cher og Gregg Allman. Cher var nýskilin við Sonny Bono þegar hún giftist Gregg. Hún fór kannski öööörlítið of fljótt útí annað hjónaband. Þau voru gift í 9 daga takk fyrir.
Carmen Electra og Dennis Rodman voru gift í rúma 6 mánuði.
Já það er eins gott að vanda valið!!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.