Hjónaband Gwen Stefani söngkonu hljómsveitarinnar No Doubt og eiginmanns hennar Gavin Rossdale er á ystu nöf ef marka má nýjustu fréttir In Touch tímaritsins.
Hjónin hafa sést koma úr hjónabandsmeðferð og vera ansi súr á svip en erfiðleikarnir hafa staðið yfir í þónokkurn tíma eða í um tvö ár.
Hjónin hafa eytt minni og minni tíma saman á þessum tveimur árum vegna anna og er aðskilnaðurinn farinn að segja til sín, þau vilja þó gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að láta hlutina ganga upp en hjónaband þeirra hefur verið talið eitt það sterkasta í glysborginni. Alveg til fyrirmyndar.
Gwen og Gavin eru að sögn slúðurpressunnar vestra hætt að vera ástúðleg við hvort annað, hlægja minna saman og eru alls ekki á góðum stað.
In Touch vill meina að rót þessa alls sé hversu upptekinn Gavin er með hljómsveit sinni, alltaf á tónleikaferð og lítið heima á meðan Gwen reynir að púsla saman fjölskyldulífinu ásamt ferlinum -ein og óstudd.
Vonum að þeim takist að laga til í sambandinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig