Blake Lively er á fullu að kynna nýju myndina sína Savages og hefur leikkonan skrartað sínu fegursta á rauða dreglinum við kynningu hennar.
Blake hefur meðal annars verið í “Old Hollywood” stíl – í æðislegri rauðri aðsniðinni dragt og að sjálfsögðu er hárið og förðunin upp á tíu eins og alltaf.
Kvikmyndinni Savages er leikstýrt af Oliver Stone og hér að neðan má sjá stiklu úr henni.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=8imzQaoEwsA[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig