Ástralska slúðurblaðið Famous heldur því fram að Beckham hjónin séu skilin og eftir það blossuðu upp þær slúðursagnir að David hefði haldið framhjá Victoriu.
Konan sem David átti að hafa haldið við heitir Katherine Jenkins en hún er söngkona. Katherine Twittaði um daginn þetta;
“Elsku Twitter vinir, ég hef heyrt hræðilegar sögusagnir hér á Twitter og vil láta ykkur vita að ég þverneita fyrir það að hafa haldið við David Beckham.”
Eftir að þessar sögusagnir fóru af stað hefur fjölmiðlafulltrúi hjónanna ekki tjáð sig.
Victoria sást hinsvegar úti um daginn á leiðinni í afmælisveislu með Harper Seven og lét sér fátt um finnast þegar papparassarnir skutu á hana spurningum varðandi framhjáhaldið.
__________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig