Glæsidömurnar í Hollywood gera hvað sem er til þess að halda sér í formi og eins og einhver sagði í spjallþætti um daginn – Þær fá jú á margan hátt borgað fyrir það að líta vel út!
Það virðist ekki stoppa þær að hafa eignast börn enda með þjálfara, barnapíur, kokka og næringarfræðinga á sínum snærum.
Sumar eru grænmetisætur eins og Lea Michelle og orðrómur hefur verið á kreiki að LeAnn Rimes laxeri nokkrum sinnum í viku til þess að hreinsa sig og fitna ekki.
Gwen Stefani hefur slakað á í ræktinni undanfarið en er samt í hörkuformi.
Kim Kardashian og Rihanna eru að sjálfsögðu á listanum enda kynþokkafullar bombur í svaka formi.
Hér eru myndir af 10 heitustu bikiníkroppunum ársins 2012.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig