Jessica Alba er flott Hollywood stelpa. Það kom mér á óvart hvað stíllinn heima hjá henni er í anda gamla Hollywood en hún nær þó að blanda skemmtilega með nýju.
Jessica hefur valið fallega hlýja haustliti bæði í fatnaði og á heimili sitt og hún á alvarlega flott skósafn þessi dama.
Selected Femme/homme í Smáralindinni eru með svipaðan fatnað og sést á þessum myndum en haustlína Selected femme er mjög rokkuð ásamt því að vera afar kvenleg.
Myndirnar eru úr tímaritinu InStyle.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.