Heidi Montag er meðal flippuðustu kvenna í Hollywood. Hún er bara 23 ára en þegar búin að fara í hrikalega margar fegrunaraðgerðir og frægust er hún fyrir að hafa farið í tíu aðgerðir á einu bretti.
Í viðtali við Life and Style segir Heidi að maðurinn hennar, Spencer Pratt, hafi alltaf verið á móti þessu aðgerðarugli hjá henni: “Hann var ekkert að giftast mér til að standa í þessu, sagði hún. Hann grátbað mig að gera þetta ekki í fyrsta skipti og við hættum næstum því saman.”
Þegar hún fór í næstu aðgerð skildu hjónin þar sem Spencer ofbauð. Of mikið álag. Hann langaði ekki að annast konuna sína líkt og eftir stórslys, skeina henni og mata hana. “Þetta var ekki díllinn þegar við giftum okkur,” sagði hún.
Svo kvartar Heidi undan aðgerðunum. Sérstaklega brjóstastærðinni sem er í G skálum!!! Halló!!
“Mér finnst rosalega gaman að æfa en með þessi brjóst get ég eiginlega ekkert æft. Ég þrái að verða bara eðlileg aftur. Kannski fæ ég mér D eða DD skálar en ég ætla að minnka þau. Mér finnst ég fangi í eigin líkama,” segir Heidi.
Og Heidi á örugglega eftir að lenda í meiri leiðindum því s.k.v nýjustu fréttum er exið hennar með eitthvað kynlífsmyndband í gangi sem hann er að reyna að selja. Rosa gaman að því.
Hér eru myndir og viðtal við Heidi eftir aðgerðina. Hún getur varla talað… og HÉR er stór fyrir og eftir mynd.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=xOOg8Uj_Z8E[/youtube]Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.