Heidi Klum og Seal skildu eftir afar hamingjusöm ár í apríl síðastliðnum. Skilnaðurinn er ekki löglega genginn í gegn en Heidi hefur þegar fundið sér nýjan.
Heidi er sögð vera komin með fyrrum lífvörð þeirra hjóna ó fangið en Seal sagði í viðtali um daginn að ef hún ætlaði að finna sér annan mann í íf sitt að þá er ekki alslæmt að það sé kunnulegt andlit. Þetta finnst honum skipta máli barnanna þeirra vegna – og hann ætlaðist ekki til að Heidi yrði skyndilega nunna en Heidi hefur verið afar dugleg að birta bikinímyndir af sér undanfarið og sýnt það og sannað að hún er ennþá í hörkuformi þrátt fyrir að eiga fjögur börn.
Seal fannst þetta þó miður að því leyti að skilnaðurinn er ekki frágenginn. Hann hélt víst að það væri meiri klassi yfir Heidi og hann var hissa að hún skyldi leggjast í rúmið og sofa hjá HJÁLPINNI – obbosí!!
Heidi hefur sést hér og þar með lífverði sínum en hér að neðan má t.d. sjá myndir af þeim á göngu í New York.
___________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig