Ofurfyrirsætan Heidi Klum lætur ekki deigan síga þrátt fyrir skilnaðinn við Seal og heldur áfram að halda hin frægu Halloween partý sín.
Núna gefur hún aðdáendum tækifæri á að skyggnast á bakvið tjöldin við hönnun búningsins sem hún mun vera í um helgina-Heidi ætlar að vera enginn önnur en sjálf Cleópatra.
Búningurinn er engin smásmíði og mun Heidi bera höfuðfat ásamt því að ermarnar eru vel “púffaðar” og langar.
Heidi segir þó að búningurinn sé afar léttur í sér og hún muni getað dansað eins og enginn sé morgundagurinn í sjálfu partýinu.
Martin Izquierdo hannaði búninginn á Heidi en hann hefur séð um búningana fyrir hana undanfarinn áratug eða svo. Þau hafa verið að planleggja búninginn í marga mánuði og að sögn Heidi getur hún hreinlega ekki beðið eftir Hrekkjavökunni!
Heidi kann svo sannarlega að skemmta sér og sínum og verður skemmtilegt að sjá myndir frá kvöldinu eftir helgi.
_______________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig