Heidi Klum prýðir forsíðu Allure tímaritsins nú í maí. Þessi ofurflotta ofurfyrirsæta er meðal annars nakin á einni myndinni og er ekki að sjá á henni að hún sé 38 ára gömul eða hafi eignast fjögur, já fjögur börn!
Hún sló fyrst í gegn sem alþjóðleg fyrirsæta hjá Victoria’s Secret en fyrir það voru fáir hönnuðir sem vildu fá hana til þess að sýna fyrir sig föt. Hún fór um allt, meðal annars til París og New York, en líkaminn þótti ekki henta sem pallafyrirsætukroppur þar sem hún var talin vera of “busty”, lítil og með of miklar línur (m.ö.o brjóst og rass). Hún var gríðarlega meðvituð um þetta en segir samt að hún hafi alls ekki verið of þung, hún hentaði bara ekki hátískunni á tískupöllunum.
Eftir að Heidi þessa misheppnuðu tilraun til að verða ‘pallafyrirsæta’ (catwalkmodel) ákvað hún að fylgja draumnum sínum að vera “bara” módel, hún vissi það að hún myndi finna sér fyrirsætustarf við sitt hæfi.
Heidi finnst það alls ekki tiltökumál að pósa nakin fyrir framan myndavélarnar og segir með stolti að hún hafi ekkert látið gera við sig, hvorki í andliti líkama en segir samt sem áður blaðamanninum að ræða við sig þegar hún verði orðin 65 ára – kannski verður búið að gera eitthvað þá við ofurkroppinn?
Skilnaður hennar við Seal hefur vissulega tekið á hana og Heidi finnst líka hrikalegt að fólk sé að fara í gegnum ruslið hennar til þess að leita að “skúbbi”. Papparassarnir fylgja henni öllum stundum en þetta tekur vissulega einnig á blessuð börnin sem þurfa að komast í skólann og sinna sinni daglegu rútínu.
Þó svo að skilnaður hennar og Seal hafi farið eins og hann fór þá myndi hún samt sem áður ekki fara til baka og breyta neinu. Hún sér ekki eftir neinu sem gerðist eða neinu sem þau gerðu saman eða áttu saman. Hlutirnir æxluðust bara svona og henni finnst hún ennþá standa í miðjum storminum og allt á rúg og stúi en Heidi segir einnig að stundum þurfir þú að slíta þig frá viðkomandi til þess að átta þig á hlutunum í réttu samhengi.
Og það gerði hún…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig