Þá eru Beckham hjónin búin að fullkomna fjölskylduna, þau eignuðust dóttur sem fékk nafnið Harper Seven Beckham en fyrir eiga hjónin þrjá syni.
Flestir sem fylgjast með fótbolta vita að í gegnum tíðina hefur David Beckham spilað fótbolta í búning merktum númer 7. Spurning hvort stúlkan sé nefnd Harper Seven (7) vegna fótboltaframa föðursins?
HÉR er sem sé fréttin beint af facebooksíðu Davids Beckhams.
I am so proud and excited to announce the birth of our daughter Harper Seven Beckham. She weighed a healthy 7lbs 10oz and arrived at 7.55 this morning, here in LA. Victoria is doing really well and her brothers are delighted to have a baby sister xx
Beckham hefur sagt að hann dáist að fatastíl Steve McQueen og að Mick Jagger hafi verið frekar flottur um 1960. Að klæða upp karlmenn er eitt það skemmtilegasta sem ég geri og ég var beðin um að taka til fatnað og dressa Beckham upp í nokkur skipti þegar ég starfaði erlendis -en kíkjum aðeins á fatastíl Beckhams. Það ætti að vera tiltölulega auðvelt fyrir íslenska karlmenn að nálgast fatastíl Beckhams í verslunum hér heima.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.