Leikkonan Halle Berry reynir allt sem hún getur til þess að geta flutt til Frakklands en það er einn hængur á því -dóttir hennar Nahla fær ekki leyfi frá föður sínum að fylgja henni.
Fyrrverandi kærasti Halle, Gabriel Aubry er sá sem stendur í vegi leikkonunnar að flytja til Frakklands með unnusta sínum Oliver Martinez, en hann er franskur.
Gabriel segir að ef Halle fari til Frakklands þá muni fara alveg eins fyrir henni og Díönu heitinni prinsessu, það eru reyndar lög í Frakklandi sem segja til um það að papparassarnir eigi að virða friðhelgi stjarnanna og er stranglega bannað að taka myndir af þeim á opinberum vettvangi. Ef þú tekur myndir af fólki án þeirra samþykkis þá ferðu beint í fangelsi og færð dóm.
Halle vill flytja til Frakklands til þess að fá frið frá ljósmyndurum og slúðurmiðlum en Gabriel vill meina að papparassarnir geri allt til þess að ná hinni fullkomnu mynd sem þeir græða mest á og geri hvað sem er fyrir hana-það skipti litlu máli hvort þú lendir í fangelsi eða ekki.
Forræðisdeilan og réttarhöldin halda áfram næstu vikurnar og þá kemur í ljós hvort Halle fær að flytja úr landi með dóttir þeirra eða ekki.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig