Hin íðilfagra einstæða móðir Halle Berry slasaðist fyrir skemmstu þegar hún var við tökur á myndinni THE HIVE.
Leikkonan var að taka upp atriði þegar hún skall á jörðina og skallaði stétt. Hún var flutt hið snarasta á spítala með sjúkrabíl og þegar var búið að ganga úr skugga um að allt var í lagi þá var hún útskrifuð.
Halle á þó að taka því rólega næstu vikuna og á að slaka á heima hjá sér. Samkvæmt læknisráði á hún ekki að mæta á tökustað fyrr en hún hefur náð fullum bata.
Hætturnar leynast greinilega víða…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig