Einkadóttir Grease söngkonunnar (og Xanadu) Oliviu Newton John hefur ekki átt sjö dagana sæla á sinni ævi.
Chloe Lattanzi (23) hefur bæði glímt við anorexiu og aðra sjúkdóma en taldi sig hafa fundið hamingjuna þegar hún kynntist James Driskill. Þá var hún búin að jafna sig á sjúkdómnum og meira að segja gefa út plötu um baráttuna. Þau James ætluðu að gifta sig í haust en Chloe bakkaði hratt út úr því þegar hún komst að því í gegnum vin sinn að hann væri enn giftur sænskri konu sem heitir Nina en þau giftu sig árið 2005. Hann gleymdi bara að segja nýju unnustunni frá því.
Bæði Chloe og Olivia eru í tómu tjóni út af þessu enda voru allir svo glaðir yfir því að stelpan hefði loks fundið hamingjuna.
Svona eru sumar bara endalaust ekki heppnar.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.