Stjörnurnar skinu skært á rauða dreglinum á American Music Awards sem voru haldin í fertugasta skiptið í gærkvöldi.
Gylltur var klárlega litur kvöldsins en margar af skvísum glysborgarinnar mættu í fallegum gylltum kjólum. Að vanda voru stigin nokkur feilspor inn á milli en flestar dömurnar voru þó stórglæsilegar þegar þær gengu niður rauða dregilinn.
Sigurvegari kvöldsins var klárlega Justin Bieber en hann hlaut samtals þrjú verðlaun og meðal þeirra var listamaður ársins. Nicky Minaj og Taylor Swift hlutu einnig verðlaun.
Kesha, Justin Bieber, Taylor Swift, Carrie Underwood og Nicky Minaj voru meðal þeirra sem komu fram á verðlaunahátíðinni og stjörnurnar skemmtu sér konunglega.
Hér að neðan getur þú séð fullt af myndum af stjörnunum þegar þær mættu á rauða dregilinn.
______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig