Gwyneth Paltrow og Chris Martin voru bæði æst í að fá mynd af sér með suður-Kóreanska söngvaranum PSY á Met Gala ballinu í New York á dögunum.
Hjónin urðu víst alveg “starstruck” þegar þau sáu ‘Gangnam Style’ manninn og báðu um mynd af sér með honum svo þau gætu sýnt börnum sínum Apple átta ára og Moses sem er sjö ára.
Í viðtali við Ástralska útvarpsstöð sagði Gwyneth son þeirra með mikla þráhyggju fyrir söngvaranum svo það kom ekki annað til greina en að fá mynd af þeim með honum.
“Chris fór til hans, kynnti sig og sagðist vera söngvari Coldplay en PSY vissi ekkert hver hann var. Þegar hann svo áttaði sig, eftir einhverjar skýringar, varð hann voða kátur og vildi gjarna vera með okkur á mynd. Svo sendum við krökkunum myndina við mikinn fögnuð.
Gwyneth segir að þetta hafi verið hápunkturinn á frekar leiðinlegu kvöldi en þá er skemmst frá því að segja að ekki ómerkari gestir en Madonna, Beyonce og Jennifer Lawrence voru með henni í þessu partýi.
Gwyneth var víst ekki sú eina sem fannst veislan leiðinleg en hún sagði að rapparinn Kayne West hafi verið alveg “brjálaður” án þess að hún kynni neina sérstaka skýringu á því.
“Kanye West var hrikalega pirraður, henti míkrófóninum frá sér og var með mikið drama án þess að neinn vissi af hverju.”
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.