Leikkonan Gwyneth Paltrow varð fertug þann 28.september síðastliðinn og flaug ásamt nánum vinum til Ítalíu að fagna áfanganum.
Allt er fertugum fært eins og sagt er og Gwyneth hefur sjaldan eða aldrei litið jafn vel út og hún gerir einmitt núna nýorðin fertug. Hjónaband hennar við Chris Martin hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu frá því þau byrjuðu saman en þau hafa haldið þessu svolítið ‘fyrir sig’ eins og sagt er.
Gwyneth bauð nokkrum nánum vinum sínum til lítillar veislu á snekkju í Portofinu á Ítalíu en þar hélt einmitt Madonna fimmtugsafmælið sitt eins og frægt er orðið enda staðurinn vinsæll hjá stjörnunum.
Veislan var afar afslöppuð, náin og róleg og allir sem fögnuðu með þeim hjónum skemmtu sér konunglega.
Hér að neðan má sjá myndir af Gwyneth fagna ásamt vinum sínum og eiginmanni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig