Gyðjan af GOOP er ekkert endilega neitt rosalega dómhörð, að minnsta kosti ekki þegar kemur að framhjáhaldi.
Gwyneth hefur verið gift söngvara Coldplay, Chris Martin, í sjö ár og saman eiga þau krakkana Epli (Apple) 7 ára og Móses sem er 5 ára.
Gwyneth tjáði sig um framhjáhald á blaðamannafundi vegna myndarinnar Contagion sem hún kynnti á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á dögunum.
“Ég er mjög rómantísk,” sagði hún. “En ég held að maður geti bæði verið raunsær OG rómantískur á sama tíma.”
“Lífið er bæði langt og flókið. Fólk sem ég bæði virði og lít upp til hefur átt í samböndum utan hjónabands. Fólk sem ég þekki persónulega,” sagði gyðjan en hún á ótal margar BFF sem búa í Hollywood, meðal annars Beoncey og Madonnu.
“Við erum breysk — við erum manneskjur og stundum tekur maður ákvarðanir sem aðrir eiga eftir að dæma. Það er þeirra vandamál en mín reynsla er sú að því lengur sem ég lifi því betur lærist mér að dæma ekki annað fólk og það sem það gerir. Við erum flest að reyna okkar besta og lífið er aldrei einfalt.”
Hennar eigið hjónaband við hinn fjórum árum yngri eiginmann Chris Martin stendur þó á traustum grunni:
“Ég er heppin, ég á yndislegt og blessað líf, tvö dásamleg börn og mjög góðan eiginmann,” sagði hún og hló. “Sjö, níu, þrettán…”
HÉR er innlit í sumarhús Gwyneth, SVONA gerði hún fínt um páskana og HÉR er hún í ELLE.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.