Sumum finnst Gwyneth Paltrow æðisleg og sumum finnst hún ekki eins æðisleg en hún er allavega ágæt framan á nýjasta ELLE.
Í blaðinu er rosa viðtal við hana þar sem hún talar meðal annars um manninn sinn og plönin um að verða tónlistarkona sjálf en Gwyneth virðist margt til lista lagt fyrir utan að vera leikkona. Hún eldar, hannar, gefur út bækur og næsta plan er að verða poppstjarna.
Gwyneth vildi samt ekki fá manninn til að styðja við tónlistaferilinn (Chris Martin úr Coldplay) heldur fékk hún t.d. Beyoncé til að gefa sér góð ráð. Beyoncé sagði henni að vera bara hún sjálf en ekki uppskrúfuð. Skrítið að hún hafi sagt það. Gwyneth er einmitt eitthvað svo lítið uppskrúfuð. Ha?
Hér eru myndirnar frá ELLE og hér er bloggið hennar Gwyneth þar sem hún gefur t.d. uppskrift að pizzu og er kát með að hafa sett eldofn í garðinn sinn til að fá góðar pizzur. Ég ætla að gera það líka á morgun! Skella einum eldofni í garðinn svo að ég fái almenninlegar pizzur. Takk fyrir gott ráð Gwyneth.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.