Söngkonan Gwen Stefani er forsíðustúlka Marie Claire í janúar 2013, hún er meðal annars þekkt fyrir hörkukropp en vegna anna hefur líkamsræktin þurft að sitja á hakanum.
Gwen segir að á meðan No Doubt voru að taka upp nýjustu plötuna sína Push and Shove hafi hún þurft að láta eitthvað víkja vegna anna og líkamsræktin varð fyrir valinu.
Gwen segir að það hafi samt sem áður verið afar erfitt að taka sér pásu því henni hafi alltaf fundist að það væri eitthvað sem hún YRÐI að gera. Yngri sonur hennar þjáðist af mikilli eyrnabólgu á sama tímabili og upptökur stóðu yfir og Gwen var kannski búin að vera vakandi alla nóttina en fór samt og gerði sínar æfingar eldsnemma á morgnana. Síðan fór hún að sinna drengjunum, koma þeim í skóla og pössun, því næst fór hún á fundi vegna fatahönnunar sinnar og seinniparturinn og kvöldið fóru í upptökur.
Þegar hún mætti í hljóðverið var hún eins og sprungin blaðra og ákvað að eitthvað þyrfti að víkja en það var rosalega erfið ákvörðun að taka sér frí frá ræktinni.
Hún hafi verið orðin fanatísk á hreyfingu og fundist hún vera skylda. Núna líður henni mjög vel að hafa tekið þessa ákvörðun en farið er að hægjast hjá henni og hún reynir að komast í ræktina eða fara út að hlaupa þegar hún getur.
Það er hinsvegar ekki að sjá á söngkonunni að hún sé búin að taka sér hlé frá ræktinni enda er hún glæsileg í myndaþættinum og á tónleikum er hún afar dugleg að sýna á sér magavöðvana!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig