Það er alltaf nóg um að vera í Hollywood og það virðist sem að slúðrið stoppi aldrei, hér eru nokkrar heitar fréttir…
Suri Cruise (7): Sú litla er handleggsbrotin en þrátt fyrir að eiga heimsfræga foreldra sem gera allt fyrir hana þá koma slysin fyrir. Suri er með gifs nánast upp að öxlum en ekki hefur enn verið gefið upp hvernig Suri brotnaði. Hún virðist þó vera við hestaheilsu og skartar hvítu gifsi með batakveðjum frá vinum og vandamönnum.
Gwen Stefani (43): Gwen er ólétt að sínu þriðja barni en hún og söngvarinn Gavin Rossdale eiga fyrir tvo syni, þá Zuma og Kingston. Söngkonan er þekkt fyrir grjótharða magavöðva þrátt fyrir að eiga þegar tvö börn og hún verður örugglega enga stund að koma sér í form aftur eins og vanalega eftir meðgöngu. Einhverjir erfiðleikar hafa verið í hjónabandinu hjá Gwen og Gavin en þau virðast hafa leyst sín mál og eru í skýjunum með tilkomu nýjasta fjölskyldumeðlimsins.
Scarlett Johanson (28): Kynbomban fagra er komin af markaðnum en daman er trúlofuð blaðamanninum Romain Dauriac og hringurinn hennar er sko ekkert slor. Risastór demantur… úff myndi ekki neita þessum hring á baugfingri, já takk fyrir! Skötuhjúin hafa verið trúlofuð í mánuð en þá bar Romain spurninguna upp og Scarlett játaðist. Parið er yfir sig hamingjusamt og Scarlett er komin í brúðkaupsgírinn — stóra spurningin er þá bara sú, verður brúðkaupið stórt eða lítið??
Robin Thicke (36): Sprelligosinn hefur verið á allra vörum eftir VMA hátíðina vegna uppátækisins með Miley Cyrus. Margir myndu halda að hann væri í hundakofanum hjá eiginkonu sinni Paulu Patton (37) en síður en svo… hún styður sinn mann í blíðu og stríðu. Robin segir að hann veit ekki hvar hann væri staddur í lífi sínu núna ef að Paulu nyti ekki við, hún sé kletturinn hans, veiti honum innblástur og hann elskar hana af öllu sínu hjarta og bara hana, allt hitt er bara skemmtanabransinn.
Já það er alltaf líf og fjör í Hollywood, fylgstu með á morgun þegar fleiri Hollywoodfréttir koma inn á Pjattið.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig