Söngkonan Gwen Stefani er forsíðustúlka ELLE UK í októbermánuði og myndirnar af henni æðislegar!
No Doubt eru að fara gefa út nýja plötu sem heitir “Push and Shove” og fær platan þar með smá kynningu í Evrópu með viðtalinu.
Gwen er meðal annars í kjól frá Alexander McQueen og ég held að hún hafi sjaldan eða aldrei litið jafn vel út og hún gerir núna.
Þetta er í þriðja sinn sem Gwen birtist á forsíðu í Bretlandi og henni finnst alltaf jafn gaman að koma til Bretlands og fara í myndatökur en ástæðan að þessu sinni er einmitt nýja platan. Gwen segir að platan fjalli um hvað allt sé yfirþyrmandi og hvernig maður tekst á við að gera allt -að reyna að finna rétta jafnvægið í lífinu.
Hér að neðan eru frábærar myndir úr tímaritinu, njóttu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig