Í ár eru fimmtíu ár síðan fyrsta myndin um njósnarann James Bond var frumsýnd.
Nýjasta myndin Skyfall var svo frumsýnd í fyrradag og aðalleikararnir voru stórglæsilegir á rauða dreglinum.
Daniel Craig var myndarlegur í smóking sem og Javier Bardem en hann fær þann heiður að leika vonda kallinn í Skyfall.
Bond stúlkurnar Naomie Harris og Berenice Marlohe voru einnig gullfallegar í síðkjólum.
Daniel Craig sem er að leika James Bond í þriðja sinn núna segir að hann elski að leika James Bond, hann fái smá “kikk” út úr því.
Hann segir einnig að í Casino Royale hafi hann nokkurn veginn fengið að byrja með hreinan skjöld því núna á að fara að byrja frá “byrjun” og því verður spennandi að sjá hver útkoman í Skyfall verður með Daniel Craig og hans dásamlegu bláu augu.
Skoðaðu myndirnar af leikurunum á rauða dreglinum hér fyrir neðan.
_________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig