Vanity Fair partýið er það partý sem allir vilja komast í eftir að Óskarsverðlaunin hafa verið afhent.
Í ár var ákveðið að bjóða stjörnunum uppá að fá portrait myndir af sér (með eða án maka) og ég verð að viðurkenna að útkoman er nokkuð glæsileg. Þetta kvöld er einmitt það kvöld þegar glamúrinn er hvað mestur og hvers vegna ekki að eiga mynd af sér þegar maður er kominn í sparigallann!
Það var ljósmyndarinn Mark Seliger sem tók myndirnar af stjörnunum í veislunni og eru flestar stjörnurnar mjög afslappaðar og hrikalega smart á þessum myndum. Myndir sem voru teknar á bakvið tjöldin voru síðan settar inn á Instagram síðuna hans Mark og hefur þessi uppákoma vakið mikla lukku.
Kíktu á myndasafnið hér fyrir neðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig