Það virðist skipta öllu máli í glysborginni að líta vel út en margar af þekktustu mömmum borgarinnar hafa tekið kroppinn algjörlega í gegn eftir barneignir og líta jafnvel betur út núna en áður en þær áttu börn.
Margar ofurfyrirsætur hafa fengið kvenlegri línur og aðrar hafa tónað sig meira upp eftir að þær áttu börnin sín. Það er óhætt að segja að þær gera þetta ekki hjálparlaust en þær eru með einvala lið einkaþjálfara og næringarfræðinga sér við hlið til að koma sér í gott form, margar hafa þó ekki hoppað strax í bikiní og þurft að hafa ansi mikið fyrir því að missa “barnakílóin”.
Hér að neðan er myndasafn af nokkrum dömum úr Hollywood í bikiní fyrir og eftir barnsburð.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig