Giuliana og Bill eru kannski ekki mikið þekkt hér á Íslandi en Bill er fyrsti sigurvegari í „The Apprentice“ en það er sjónvarpsþáttur sem margir Íslendingar ættu að kannast við. Giuliana er fréttakona á E! sjónvarpsstöðinni.
Parið er vel þekkt í Bandaríkjunum en þau eru með raunveruleikaþátt sem heitir „Giuliana and Bill“.
Í þáttunum hafa þau verið dugleg að leyfa fólki að fylgjast náið með þeirra lífi í góðu og slæmu en eitt af því sem hefur verið á döfinni undanfarið er hversu illa þeim hefur gengið að koma barni undir. Þau hafa farið í tæknifrjóvganir, misst einu sinni og ýmsir erfiðleikar orðið á meðferðinni en nú loks eru þau að verða foreldrar eftir að hafa reynt í fjöldamörg ár.
Giuliana greindist með brjóstakrabbamein á síðasta ári en það kom í ljós þegar hún var að hefja frjósemismeðferð. Læknirinn hennar vildi að hún færi í ítarlegar rannsóknir áður en að þau myndu hefja frjósemisferlið enn á ný. Eftir greininguna var ákveðið að fjarlægja bæði brjóstin til þess að koma í veg fyrir að krabbameinið myndi dreifa sér frekar.
Þegar það kom í ljós ákváðu þau að frysta egg og eru þau með staðgöngumóðir sem gengur með barnið þeirra en Giuliana getur ekki orðið ólétt vegna lyfja sem hún er að taka inn eftir allt ferlið sem fylgir eftir brjóstnámið og krabbameinið.
Bill og Giuliana hafa gefið út nokkrar bækur saman um sambönd, hjónabandið og fleira. Bill er mjög eftirsóttur sem fyrirlesari um fjármál og ýmislegt sem viðkemur sparnaði en vinsældir hans jukust líka enn frekar þegar þau byrjuðu með raunveruleikaþáttinn sinn. Það er frábær skemmtun að horfa á þáttinn þeirra og hef ég fylgst með honum frá byrjun. Þau eru einstaklega fyndið par, yfir sig ástfangin hvort af öðru og er Bill rödd skynseminnar í hjónabandinu á meðan að Giuliana er á léttari nótunum.
Hér að neðan má sjá myndband þegar þau tilkynntu fréttirnar um að þau væru að verða foreldrar í The Today Show:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=TOvVP5Bv2sA[/youtube]
Hér er heimasíða þáttarins en þættirnir eru sýndir á E! og Style Network.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig