Giuliana og Bill Rancic hafa loksins fengið ósk sína uppfyllta og eiga nú lítinn gullmola sem staðgöngumóðir gekk með fyrir þau.
Drengurinn hefur fengið nafnið Edward Duke Rancic og heilsast honum vel. Giuliana og Bill gáfu tímaritinu Life & Style fyrsta viðtalið og myndir af Edward. Giuliana segir að hún hafi alltaf heyrt vini sína tala um þegar þú eignast barnið sem þú hefur alltaf þráð, þá verði lífið fullkomið og hafi loksins tilgang. Þannig líður henni akkúrat núna. Hún segist elska son sinn og nýja hlutverkið.
Það var ekki auðveld leið sem hjónin þurftu að fara til þess að eignast Edward en Giuliana var búin að fara tvisvar sinnum í tæknifrjóvgun, missa fóstur einu sinni og fara í margar hormónameðferðir. Þegar þau ætluðu að byrja þriðju tæknifrjóvgunina þá kom í ljós að Giuliana var með brjóstakrabbamein og hún lét fjarlægja bæði brjóst sín og byggja þau aftur upp til þess að fyrirbyggja frekara mein. Þegar öllu þessu var lokið tilkynnti læknirinn henni að hún mætti ekki vera ólétt næstu fimm árin þar sem krabbameinið gæti komið aftur upp. Þá voru góð ráð dýr og eftir mikla umhugsun þá ákváðu þau að fá staðgöngumóður.
Staðgöngumóðirin gerði ekkert annað en að ganga með barnið en egg Giuliönu var notað ásamt sæði Bill og því er Edward 100% þeirra enda kom ekkert annað til greina hjá þeim þar sem þau áttu ennþá til egg eftir meðferðirnar sem Giuliana þurfti að ganga í gegnum.
Giuliana segir að allt sem á undan sé gengið hafi verið þess virði, hver einasta sprauta og læknaheimsókn því hún er loksins komin með barnið sem hún þráði alltaf í fangið. Ohh fallegt, til hamingju Giuliana og Bill!
Hægt er að fylgjast með lífi Giuliönu og Bill á sjónvarpsstöðinni Style Network en þættirnir eru sýndir á fimmtudögum kl 19:00.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig