Ofurfyrirsætan Gisele Bunchen var flott í svörtum kjól og blazer jakka þegar hún mætti á ljósmyndasýningu hjá vini sínum Mario Testino í Boston.
Sýningin var haldin í The Museum Of Fine Arts í Boston og Gisele var ekkert nema brosið og að sjálfsögðu stórglæsileg að vanda –en ekki hvað?.
Gisele hefur hreinlega blómstrað í Boston undanfarna mánuði en hún og eiginmaður hennar Tom Brady búa þar meðan Tom spilar Amerískan ruðning í NFL deildinni með New England Patriots.
Nýjasti meðlimur hjónanna er væntanlegur á næstu mánuðum en fyrir eiga hjónin saman einn son.
Það geta ekki allir verið gordjöss… eins og Gisele.
____________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig