Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen (32) er á steypinum og mun hún fæða annað barn þeirra Toms Brady von bráðar.
Fyrirsætan lét fara vel um sig á ströndinni á Miami um helgina, klæddist litlu hlébarðabikiní og lét sér fátt finnast um alla papparassana sem tóku myndir af henni á meðan.
Miðað við myndirnar er ekki langt í það að Gisele fari að eiga og hún verður örugglega komin í ofurmódelform á nokkrum vikum eins og þessara kvenna er siður, hvernig sem það er nú hægt.
Hér liggur stelpan og sólar sig á ströndinni… hver vildi ekki vera þarna núna?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig