Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele er í myndaþætti fyrir franska Vogue júní/júlí 2012.
Þar má sjá Gisele í hinum ýmsu stellingum og fatnaði. Þessi flotta kona er hæst launaðasta ofurfyrirsætan í heiminum í dag og af myndunum að dæma er það ekkert skrýtið enda er hún hörkukroppur og gullfalleg.
Nýlegar sögusagnir hafa verið á kreiki að fyrirsætan sé barnshafandi að sínu öðru barni með eiginmanninum Tom Brady en þær fréttir hafa ekki verið staðfestar ennþá, fyrir eiga þau soninn Benjamin sem er tveggja ára gamall og Tom á einn son fyrir með leikkonunni Bridget Moynahan.
Hér eru myndirnar – flott kona!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig