Það kemur kannski ekki mörgum á óvart að Anna Mjöll hefur nú farið fram á skilnað við hinn ævagamla Cal Worthington sem hún giftist í apríl á þessu ári.
Þá var fátt annað rætt í fjölmiðlum enda er fimmtíu ára aldursmunur á parinu og marga grunaði að Anna gengi í það heilaga með þeim gamla til að hafa af honum fé, enda Cal vellauðugur milljarðamæringur.
Á skilnaðarpappírunum kemur fram að Anna vilji að Cal sjái fyrir henni eftir skilnaðinn, greiði framfærslu, en óvíst er hvort það standi lengi því um leið og Cal fellur frá mun framfærslan gera það einnig. Hvað gerir Anna þá? Ekki gott að segja en það verður gaman að fylgjast með henni í Hollywood, það er að segja ef hún flytur ekki aftur til Íslands.
Anna Mjöll er fædd árið 1970 og er barnlaus.
[poll id=”38″]Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.