Geri Halliwell skellti sér út á lífið á dögunum með nokkrum vinkonum sem eru töluvert yngri en hún sjálf.
Geri gaf þessum ungu snótum ekkert eftir hvað útlitið varðar en hún skartaði hnéháum og afar töff stígvélum sem sýndu fagra tónaða fótleggi söngkonunnar ásamt því að klæðast flottum blúndukjól og glimmerjakka yfir.
Ljónið Geri, sem verður fertug í þann 6 ágúst næstkomandi, var á skemmtistaðnum Mahiki Club í miðbæ Lundúna þegar þessar myndir náðust af henni og fríðu föruneyti.
Fatnaður Kryddpíunnar var allt annar fyrr þennan sama dag en þá var hún eilítið dannaðri og klæddist bleiku pilsi og kremuðum bol sem sýndi kannski vöxtinn ekki eins vel.
Geri neitaði fyrir skemmstu að vera með í þættinum “Strictly Come Dancing” í Bretlandi en ætlar þess í stað að einbeita sér að uppsetningu söngleiksins “Viva Forever” með Kryddpíunum en hann verður frumsýndur í desember.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig