Ofurfyrirsætan Heidi Klum skildi við eiginmann sinn Seal á síðasta ári en hefur verið að deita fyrrum lífvörð sinn síðan. Fyrirsætan sagði í viðtali við tímaritið Marie Claire að hún sé ekki að leita af yngri fola.
Heidi segir að hún geti ekki ímyndað sér það að vera með 25 ára gömlum “dreng” vegna þess að hún er sjálf að verða fertug.
Jú, ungir menn séu vissulega oft vel vaxnir og hugsa vel um líkamann sinn en það sé hreinlega ekki nóg fyrir fyrirsætuna, hún er að leita eftir einhverju meira en bara líkamlegu sambandi.
Heidi segir að fólk sé gersamlega miður sín vegna skilnaðarins en hún tekur lífinu með stakri ró vegna þess að allir séu heilbrigðir og hafi það gott.
Skilnaður sé ekki það versta sem geti komið fyrir fjölskylduna en hún hefði svo sannarlega viljað að hlutirnir hefðu gengið upp sem þeir gerðu því miður ekki í þeirra tilfelli.
Ofurfyrirsætan talaði ekki um samband sitt og fyrrum lífvarðarins, Martin Kirsten. Hún hefur örugglega lært af reynslunni þar sem þau Seal voru afar opinská varðandi hjónaband sitt en nú vill Heidi hafa hlutina út af fyrir sig.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig