Heimurinn tók andköf þegar Breska Konungsfjölskylan tilkynnti það á mánudaginn að Kate og William prins ættu von á barni, Kate liggur nú á spítala vegna alvarlegrar morgunógleði og er undir stöðugu eftirliti lækna.
William hefur heitið því að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að vernda Kate og ófætt barnið þeirra fyrir öllu fjölmiðlafárinu en papparassar/blaðamenn og ljósmyndarar sitja um spítalann þar sem að Kate hvílist.
Kate er með svo alvarlega morgunógleði að hún heldur litlu sem engu niðri sem er hættulegt fyrir hana og barnið og hætta er á því að hún ofþorni.
Mikið hefur verið reynt að fá tal af starfsmönnum spítalans og tókst útvarpsmönnum það með því að þykjast vera frá hirðinni en það ætlaði allt um koll að keyra þegar upptökurnar fóru í loftið. Fjölmiðlafólki virðist vera alveg sama um einkalíf Kate og Williams og lætur allar reglur sem vind um eyru þjóta til þess að fá fréttir eða mynd.
Það er óhætt að segja að litla krílið sem er nýkomið undir sé það frægasta í heiminum núna en barnið mun verða þriðji erfinginn að krúnunni á eftir Karli bretaprins og föður sínum William.
Í september s.l. birtum við frétt þar sem sagt var frá því að Vilhjálmur sagðist vera tilbúin að byrja að reyna að eignast börn. Gaman hvað þetta gekk fljótt upp hjá þeim. Lestu fréttina HÉR.
Vonandi fer Kate að hressast og við skulum líka vona að fjölmiðlar fari að virða einkalíf þeirra betur en í sumar birtust myndir af Kate þar sem hún var ber að ofan og urðu þau hjónin afar sár eftir myndbirtingarnar og ætla sér að fara afar varlega þegasr kemur að barninu þeirra og meðgöngunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig