Fræga fólkið í Hollywood notar Twitter óspart til þess að sýna myndir af sér og sínum og þetta gera þau sum daglega, jafnvel nokkrum sinnum á dag.
Vikan sem er senn á enda er þar engin undantekning en þá birtust fjölmargar myndir á síðunni, í boði stjarnanna.
Victoria Beckham setti inn mynd af sér á svölunum í Las Vegas en hún fór í myndatöku í borginni. Coco setti inn eina gamla og góða mynd af sér í dressi sem ég veit ekki alveg hvort er kjóll eða bolur enda er það hennar stíll.
Kim Kardashian setti að sjálfsögðu nokkrar myndir á Twitter að vanda og Selena Gomez setti inn mynd af sér skælbrosandi þrátt fyrir sambandsslit þeirra Justin Bieber. Kelly Osbourne gerðist afar djörf og birti mynd af blöðru á löppinni sinni -ái!! Dæmigert fyrir hana enda er hún ekki allt of upptekin af því að vera fullkominn þessi elska.
Skoðaðu Twitter myndir vikunnar hér að neðan:
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig