Það getur ekki verið gaman að hafa papparassana alltaf á eftir sér þó sérstaklega þegar maður er á leiðinni út að skemmta sér og er heimsfrægur í þokkabót.
Stjörnurnar í glysborginni eru eins og við hin og fara stundum yfir strikið í drykkjunni. Munurinn á okkur og þeim er að myndavélarnar eru aldrei langt frá þeim og náðst hafa miður skemmtilegar myndir af ýmsum stjörnum í annarlegu ástandi. Þetta getur ekki verið skemmtilegt í þynnkunni að vera að vafra um netið og það fyrsta sem þú sérð er afar óskemmtileg mynd af þér.
Já og þó?
Það kannast nú einhverjir við að hafa skoðað Facebook daginn eftir skemmtun og þar birtist hver myndin á fætur annari sem þú vildir óska að væri ekki á netinu.
_______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig